Munur á milli breytinga „Stjórnartíðindi fyrir Ísland 1874/A. deild/Nr. 1“

Úr LagaWiki
 
(Enginn munur)

Núverandi breyting frá og með 21. janúar 2023 kl. 14:45

Árgangar Stjórnartíðinda

1874 5 6 7 8 91880 1 2 3 4 5 6 7 8 91890 1 2 3 4 5 6 7 8 91900 1 2 3 4 5 6 7 8 91910 1 2 3 4 5 6 7 8 91920 1 2 3 4 5 6 7 8 91930 1 2 3 4 5 6 7 8 91940 1 2 3 4 5 6 7 8 91950 1 2 3 4 5 6 7 8 91960 1 2 3 4 5 6 7 8 91970 1 2 3 4 5 6 7 8 91980 1 2 3 4 5 6 7 8 91990 1 2 3 4 5 6 7 8 92000 1 2 3 4 5 6 7 8 92010 1 2 3 4 5 6 7 8 92020 1 2 3

Stjórnartíðindi 1874. A. 1.
26. september 1874.
Nr. 1.
14. júlí 1874.
Fyrri: (efnisyfirlit)
Næst: Allrahæsti úrskurður um að skipaður sje ráðgjafi fyrir Ísland
Blaðsíða 2
Auglýsing
um að stofnað skuli stjórnarráð fyrir Ísland og hvernig skipta skuli niður störfum þeim, sem hin íslenzka stjórnardeild, er hingað til hefir verið, hefir haft á hendi.

Með allrahæstum úrskurði, dagsettum í dag, hefir hans hátign konunginum þóknazt allramildilegast að skipa svo fyrir:
1) að stofna skuli frá 1. ágúst þ. á. sjerstakt stjórnarráð fyrir Ísland, samkvæmt stjórnarskrá um hin sjerstaklegu málefni Íslands, 5. janúar 1874, 2. og 62. gr.;
2) að öll þau mál, viðvíkjandi Íslandi, sem hingað til hafa verið afgreidd í hinni íslenzku stjórnardeild, er heyrir undir dómsmálastjórnina og að því leyti, er snertir kirkju- og skólamál, undir kirkju- og kennslustjórnina, skuli frá 1. ágúst þ. á. lögð undir stjórnarráðið fyrir Ísland, þannig að öll sjerstakleg íslenzk málefni verði eptirleiðis afgreidd í þessu stjórnarráði, að undantekinni endurskoðun íslenzkra reikninga, sem 1. reikningastjórnardeild fjárhagsstjórnarinnar skal hafa á hendi fyrst um sinn eins og hingað til;
3) að færeysku málin, sem hingað til hafa verið afgreidd í hinni íslenzku stjórnardeild, skuli lögð undir 2. stjórnardeild dómsmálastjórnarinnar, að undanteknum færeyskum kirkju- og skólamálum, sem skulu lögð undir kirkju- og kennslustjórnina.

Í fyrirsæti ráðgjafanna 14. dag júlím. 1874.
L. Gr. Holstein.
J. Holten.