Munur á milli breytinga „Lagasafn handa alþýðu (1885)“
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 19. september 2024 kl. 14:53
Stafsetning fylgir venjum þess tíma þegar efnið var gefið út. Töluvert er um ósamræmi í staf- og greinarmerkjasetningu en einnig augljósar villur sem þó eru látnar halda sér.
LAGASAFN
HANDA ALÞÝÐU.
Jón Ólafsson
hefir búið til prentunar fyrir
ið íslenzka þjóðfrelsisfélag.
I. hefti.
Reykjavík.
Á kostnað félagsins.
Prentsmiðja EINARS ÞÓRÐARSONAR
1885.
Lögunum í safni þessu er ekki raðað eftir aldri; en síðar, er bindinu er lokið, verðr látið koma tvens konar yfirlit yfir innihaldið, bæði eftir aldri og efni; auk þess verðr nákvæmt orðaregistr látið fylgja, sem mjög auðvelt verðr að finna í hvað eina.
Auk þessa heftis kemr og út í vor Tímarit félagsins. Fjölgi félagsmönnum að mun, kemr stórt hefti næst út af safninu. Þar verðr t. d. meðal annars í: fátækra-reglugjörðin, bæjarstjórnar-lög kaupstaðanna, landamerkjalögin, l. um bygging og ábúð jarða, hjúa-lögin, aukatekju-reglugjörðin o. fl., o. fl.
Félagsmenn fá ókeypis alt, sem félagið gefr út.
☞ Árstillag félagsmanna er 1 kr. 50 aur.
⁶⁄₅. ’85.