Munur á milli breytinga „Stjórnartíðindi fyrir Ísland 1874/B. deild/Nr. 1“
(Enginn munur)
|
Núverandi breyting frá og með 30. október 2023 kl. 22:09
Árgangar Stjórnartíðinda |
1874 5 6 7 8 9 • 1880 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1890 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1900 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1910 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1920 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1930 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1940 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1950 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1960 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1970 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1980 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 1990 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 2000 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 2010 1 2 3 4 5 6 7 8 9 • 2020 1 2 3 |
Stjórnartíðindi 1874. B. 1. 19. ágúst 1874. |
Nr. 1. 17. júlí 1874. |
Fyrri: A. deild Næst: Konungsbréf |
Blaðsíða 1 |
Samkvæmt því, er dómsmálastjórnin, eptir að hafa meðtekið þóknanlegt bréf herra landshöfðingjans dagsett 4. maí síðastliðinn, hefir allraþegnsamlegast lagt til, hefir hans hátign konunginum þóknast allramildilegast að fallast á, að útgefin verði frá 1. ágúst næstkomandi tíðindi um stjórnarmálefni Íslands, og að útgjöld þau, hér um bil 240 rdl., er þar til eru nauðsynleg, verði greidd af hinum íslenzka landssjóði, þannig, að upphæðum þeim, sem tilfærðar eru í 6. grein áætlunarinnar um tekjur og útgjöld Íslands árið 1874, er staðfest var af hans hátign 31. oktbr. f. á., verði breytt samkvæmt þessu.
Jafnframt því þjónustusamlega að kunngjöra Yðr þenna úrskurð hans hátignar Yðr til leiðbeiningar, og til þess að Þér ráðstafið því, sem ennfremr er nauðsynlegt, skal stjórnin eigi láta hjá líða, að taka það fram er hér segir:
Eins og drepið er á í bréfi stjórnarinnar 16. marts þ. á. á að gefa út þessi tíðindi í 2 deildum A og B. Hin fyrri deildin, er inniheldr lög og tilskipanir, verðr gefin út hér1 í sambandi við lagatíðindin, og með hinu sama letri og á sama pappír sem þessi tíðindi, þó þannig að íslenski textinn verði prentaðr við hlið hins danska texta, en herra landshöfðinn verðr að sjá um útgáfa deildarinnar B, og verðr eptir nánari ákvörðun Yðar að taka inn í hana, auk slíkra úrskurða frá konungi og stjórninni, sem hingað til hafa verið birtir í hinum 2 deildum stjórnartíðindanna og í tíðindum þeim um stjórnarmálefni Íslands, er hið íslenska bókmentafélag hefir gefið út, ennfremr þá úrskurði landstjórnarinnar, er mundu varða almenning og jafnframt ýmsar skýrslur, er vel þykir við eiga að birta á þenna hátt, þar á meðal bin lögskipuðu ágrip af reikningum opinberra stofnana, sveitasjóða og annara slíkra sjóða, verðlagsskrár m. m., og skal í tilefni af tillögu Yðar í nefndu bréfi Yðar, ekki undanfella að taka fram, að ekki skal heimta neina borgun fyrir að taka þessar skýrslur inn í stjórnartíðindin. Loksins verðr að taka inn í þessi tíðindi skýrslur um landshagi Íslands, að nokkru leyti eins og gert hefir verið í stjórnartíðindunum, sjá Ministerialtidende árið 1871 B bls. 723 ff.
Svo er til ætlað, að stærð deildarinnar B, að meðtöldum hinum nefndu landshagsskýrslum, verði hér um bil 15 arkir á ári. Þar sem báðar deildir eiga að vera ein heild, verðr, eins og drepið er á í ofannefndu bréfi stjórnarinnar, að gefa deildina B út í hinu sama broti, með sömu réttritun og, svo framarlega sem unnt er, á sama pappír sem deildina A, er, eins og sagt var, verðr með allri hinni sömu útgjörð sem lagalíðindin, en til deildarinnar B má að öllu eða nokkru leyti nota smærra letr, og verðr að viðhafa meiri sparnað í tilliti til prentunar hennar.
Tíðindin öll á að senda borgunarlaust öllum stjórnarvöldum, landsyfirréttinum, landfógetanum, landlækninum, sýslumönnum, sveitarstjórnum, embættismönnum andlegrar stéttar og umboðsmönnum þjóðjarða á Íslandi. Að öðru leyti geta tíðindin fengist keypt fyrir það andvirði, er Þér hafið stungið upp á, 80 sk. (1 króna 66 aurar) um árið, fyrir þetta ár frá 1. ágúst til 31. desbr. 40 sk.
Eins og herra landshöfðinginn hefir ráð fyrir gjört, skal þar að auki við hafa deildina A til þinglestrs lagaboða þeirra, er hún hefir inni að halda.
Exemplör þau, er nauðsynleg eru í þessu tilefni af deildinni A, munu verða til útbýtingar þannig: c. 425 borgunarlaust, c. 200 til kaupanda og c. 175 til þinglestrs, og munu þau verða send Yðr héðan til frekari ráðstöfunar, en Þér eruð beðnir að senda stjórninni nokkur exemplör af deildinni B.
1) Samkvæmt lögum 25. júní 1870 hafa að tilhlutun stjórnarinnar frá 1. janúar 1871 verið gefin út í Kaupmannahöfn lagatíðindi og stjórnartíðindi „en Lovtidende og en Ministerialtidende“.
Blaðsíða 2 |
Fyrir ritstjórn á deildinni B getið þér látið viðkomanda fá 10 rd. fyrir örkina alt að 150 rd. um árið, og í þóknun fyrir útbýtingu tíðindanna og fyrir fjárheimtu og reikningsstörf 50 rd. um árið, og getið þér þar hjá varið alt að 150 rd. um árið til borgunar fyrir að semja landshagsskýrslurnar, og má greiða öll þessi útgjöld og það, sem annars með þarf til prentunar, pappirs og póstsendinga – og hafa þessi gjöld verið reiknuð eptir áætlun þeirri, er þér höfðuð gjört í framannefndu bréfi Yðar – en að frádregnn gjaldi frá kaupöndum, úr jarðabókarsjóði Íslands, þannig að viðkomandi upphæð fyrir nú yfirstandandi ár, samkvæmt framannefndum úrskurði hans hátignar, verði færð til útgjalda í 6. grein áætlunarinnar.